Árgangur '79

Velkominn árgangur '79

18.01.2009 15:06:42 / asa

Afmæli

Ólöf Kristín og Sigríður Sóley eru orðnar 30 ára:-)
Ólöf átti afmæli í gær 17 jan og Sigga á afmæli í dag.
Til hamingju báðar með afmælið
kv Ása

» 3 hafa sagt sína skoðun

10.01.2009 18:19:37 / asa

Gleðilegt nýtt ár

Kæru bekkjarsystkyni gleðilegt nýtt ár og takk fyrir allt það gamla.
Vonandi verður nú eitthvað úr hittingi okkar á þessu ári. 
En jú við erum nú að verða og sum orðin 30 ára gömul.

Ásbjörn var 30 ára 1 janúar innilega til hamingju með það.
Jón Garðar varð pabbi 6 janúar og til hamingju með það.

Hafið það öll gott með von um meiri heimsóknir á þessu ári á síðunni.
kv Ása Gunna



» 5 hafa sagt sína skoðun

24.07.2008 17:39:10 / asa

Jóhann orðinn pabbi

Jóhann möller er orðinn pabbi.
Guðrún og Jóhann eignuðust strák.
Innilega til hamingju með drenginn og gangi ykkur vel í uppeldinu.
kv Ása


» 6 hafa sagt sína skoðun

14.07.2008 13:57:20 / unnur

Versló og sitt lítið að hinu og þessu

Hæ allir saman
er ekki allt gott að frétta af ykkur? Er fólk eitthvað búið að plana um versló er ekki síldarævintýri á Sigló málið eða hvað ?  :o   hjá mér er allt það besta að frétta er að vinna í sumarbúðum í Reykjadal frekar skemmtilegt starf en eftir það hef ég ekki hugmynd hvað skal gera (allar hugmyndir vel þáðar) er að brasa við að klára ritgerð í uppeldis og menntunarfræði það tekst vonandi að klára þetta fyrir okt þegar útskriftin er 8| það hefur verið nóg um giftingar í árgangnum og vildi ég óska ykkur sem það hafa gert innilega til hamingju með það. Hefur eitthvað verið ákveðið með hitting hjá okkur mér sýnist að þetta sumar sé ekki málið með partý en hvernig væri bara að hittast eftir sumar þá hérna í borginni eða eru kannski allir fluttir úr borginni ? mér langar svo að hitta ykkur skemmtilega fólk. er fólk ekki laust  í sept þegar flestir eru búnir að fara í sumarfrí með fjölskyldunni.
ég bið bara að heilsa ykkur bili en vonandi sjáumst við sem fyrst

kv Unnur

» 5 hafa sagt sína skoðun

11.06.2008 13:59:43 / Ólöf

Hittingur!

Halló alles.

Til hamingju með brúðkaupsdaginn ykkar, Fanney og Kiddi og Halli Smári og Sædís. Næst eru Rósa og Þorsteinn í röðinni:)

Það eru komnar 3 uppástungur með hitting:

1) Hittast helgina 4-6 júlí - kannski bara djamma saman á laugardeginum 5 júlí.

2) Hafa haust hitting þar sem margir eru kannski búnir að plana sumarið.

3) Hafa haust hittinginn í Reykjavík.


Endilega látið vita hvað ykkur finnst. Og ef þið hittið einhverja bekkjarfélaga minna þá á heimasíðuna og það má alltaf koma með einhver comment. Ef einhver vill skrifa hér inn en er ekki með lykilorð geti þið skrifað mér, Ásu, Unni, Fanney og Hafdísi og við getum komið þessu áfram (held að við séum allar með lykilorð og kannski fleiri?).

Kveðja Ólöf Kristín


» 14 hafa sagt sína skoðun

07.05.2008 16:40:11 / Ólöf

Fréttir?

Er ekki eitthvað að frétta af ykkur öllum... hummmm?

» 7 hafa sagt sína skoðun

21.04.2008 11:57:06 / Ólöf

Könnun

Halló halló

Ég er búin að setja inn könnun um dagsetningu á árgangsmóti. Ef þessar dagsetningar eru alveg glataðar látið þá vita og við breytum þessu.;)

Kveðja Ólöf

» 12 hafa sagt sína skoðun

08.04.2008 12:46:38 / Hafdís

15 ára fermingarafmæli í dag

Já kæru bekkjarfélagar, ótrúlegt en satt þá eru 15 ár frá því við fermdumst 8|
Var það ekki örugglga þannig að við vorum bara 5 ára þegar við fermdumst... ég er allavegana ekki deginum eldri en tvítug, veit ekki með ykkur :$

Annars er nú ekki mikið að frétta af Bifröstinni. Þykist vera að læra eitthvað en akkúrat núna sit ég í fyrirlestri í fullnusturéttarfari sem er ekki meira spennandi en svo að ég ákvað að skrifa blogg... sem ég hef ekki gert í meira en ár held ég:p.

Hvað er annars að frétta af þessu árgangsmóti sem á að vera í sumar? Verður af því? Ég þarf að hafa ágætan fyrirvara á dagsetningunni svo ég geti lagst yfir söguna og reynt að sannfæra mig um að ég hafi verið í þessum bekk. Eftir síðasta árgangsmót er ég soldið efins, mundi ekki eftir neinum af þessum kennurum sem fólk var að tala um eða nokkru öðru sem um var rætt. Greinilega tók ég ekki heldur þátt í neinum leikritum, söngvakeppnum eða bekkjarkvöldum. Ef ekki væri fyrir þessa forláta bekkjarmynd þá væri ég sannfærð um að ég hafi ekki verið þarna. Ég verð þó að viðurkenna að ég man eftir ykkur öllum, þið eruð greinilega eftirminnilegri en kennararnir :haha:

kv. Hafdís

» 6 hafa sagt sína skoðun

07.04.2008 11:12:27 / Ólöf

Brandari

Það var einu sinni kona sem átti þrjár dætur.
Í hvert skipti sem einhver af dætrum hennar gifti sig bað mamman þá dótturina sem var að gifta sig í það skiptið, að vera fljóta að skrifa heim eftir að hún fluttist að heiman og segja gömlu konunni hvernig kynlífið væri hjá hinni nýgiftu.

Jæja sú elsta gifti sig fyrst og aðeins tveimur dögum seinna barst gömlu konunni bréfið frá dóttur sinni. Á því stóð aðeins "Myllukökur Myllubrauð". Gamla konan átti bágt með að skilja þetta en fyrir einhverja rælni tók hún eftir auglýsingu frá Myllunni þegar hún vað að blaða í Dagblaðinu síðar um kvöldið. En þar stóð "Myllukökur Myllubrauð...... ávallt seðjandi". Gamla konan sá nú að hún þyrfti engar áhyggjur að hafa að elstu dóttur sinni, henni væri vel sinnt.

En þar kom að miðdóttirin gifti sig og leið vika frá brúðkaupinu þar til gömlu konunni barst bréfið frá dóttur sinni. Þar stóð aðeins "Ingvar og Gylfi". Kella var nú fljót að leita að Dagblöðunum og fann að lokum auglýsingu frá Ingvar og Gylfa þar sem stóð "Nýi rúmgaflinn frá okkur......King size og extra langur". Vissi nú kella að hún þyrfti heldur engar áhyggjur af hafa af þessari dóttur sinni.

Jæja bréfið frá yngstu dótturinni var lengi á leiðinni en barst loks kellu fjórum vikum eftir brúðkaupið. Í bréfinu stóð aðeins eitt orð "Flugleiðir". Kella leitaði nú ákaft að auglýsingu frá Flugleiðum í Dagblaðinu og á endanum fann hún eina. En eftir að hafa lesið auglýsinguna leið yfir kerlinguna því þar stóð:
"Þrisvar á dag, sjö daga vikunnar, á alla áfangastaði!!!!!!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.03.2008 16:15:16 / asa

Gleðilega páska

Kæru bekkjarfélagar
Gleðilega páska. Vonandi höfðuð þið það eins gott og ég um páskana.
Búin að vera á skíðum á flottasta skíðasvæði landsins á sigló aðvitað.:lol:

Jóhann
Innilega til hamingju með afmælið.

kv Ása Gunna


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.03.2008 11:32:36 / Ólöf

Gátur

Nokkrar skemmtilegar gátur fyrir ykkur;)

1)
Eineggja tvíburar ganga saman niður Laugarveginn og mæta ungum manni sem er frændi annars tvíburans en ekki hins! Hvernig má þetta vera?

2)
Siggi og Jói eru fæddir sama dag, sama ár og af sömu foreldrum en eru ekki tvíburar, hvernig stendur á því?


3) Ein gömul en góð.
Hver er hvorki bróðir minn né systir mín en er samt barn foreldra minna?

4)
Faðir og sonur lenda í bílslysi, Faðirin deyr en sonurinn er fluttur á spítala því hann þarfnast uppskurðs. En skurðlæknirinn segist ekki geta gert aðgerðina vegna þess að strákurinn er sonur hans. Hvernig er það hægt?

Kveðja Ólöf


» 8 hafa sagt sína skoðun

08.02.2008 12:20:57 / Ólöf

Afmæli

Halló alle sammen

 

Á einhver ykkar afmæli í febrúar? Bara svona til að setja eitthvað nýtt hér inn:lol:

 

Eru kannski einhverjar fréttir af ykkur? Einhver í nýrri spennandi vinnu, einhver að fara að gifta sig (hef reyndar ekki fengið neitt boðskort), einhver að verða pabbi eða mamma eða bara eitthvað;)

 

Veit að Tryggvi er enn á fullu í fallhlýfastökki8|

Jón Gunnar að byggja, humm eða kannski búinn að byggja?

Fanney flutt á Akureyri með fjölskylduna.

Ásbjörn er kominn með sítt hár, ekki eins sítt og ég en samt...

Birkir enn á Alþingi... er þaekkkki.

Þóra Dögg flutt á Krókinn

Helga Fanney er að læra að verða smíðastelpa.

Dagný er að skrifa greinar í blöð og svona.. er það ekki?

Svo ef þið munið eftir honum BADDA sem var með okkur í bekk einu sinni þá er hann að gera allt vitlaust á skemmtistöðum að leyfa öllum að reykja inni og svona:klikk:

Magnús býr á Sigló og Eva Björk líka... held samt að þau búi ekki saman!

Olga býr í Vogunum með dýrunum sínum og er í Háskólanum.... hún er ekki handrukkari:S

 

Endilega komið með fleiri fréttir.

Smá viðbót.....

Hitti Ásbjörn í stuði um helgina og hann er sko búinn að láta klippa sig...;)

 

Jón Örn á svo von á sínu fyrsta (svo við vitum) barni í ágúst. Til hamingju með það:)

Kveðja Ólöf sem vinn enn á Heimsferðum og bý í Kopppavoginum - fer samt aldrei á Goldfinger:$


» 12 hafa sagt sína skoðun

29.01.2008 17:42:36 / Ólöf

Spænsk sápa

Hafi þið séð spænsku sápuóperuna á Stöð 2???? Á vængjum ástarinnar eða Wings of Love:o) Þvílík snilld, ég verð bara að segja það. Sá nokkra þætti um jólin og svo aftur í síðustu viku og það liggur við að ég stilli videoið á upptöku þegar þessir þættir eru! Hef sjadan skemmt mér jafn mikið yfir sápuóperum og hvað þá frá Suður-Ameríku. En ef ykkur leiðist og þið þurfið að hlægja þá ættuð þið að horfa á nokkra þætti. T.d þá eru allir voða sætir þarna og það var bara ein stelpa sem var "feit" en ég mundi nú bara segja að hún væri mjög venjuleg en hún var alltaf kölluð "bolla" og náði ekki í neina stráka, en hún var svo ástfangin af einum og náði honum í rúmið og varð ólétt. En hann var aðal töffarinn og vildi sko ekki "feita" kærustu. Núna er hún semsagt búin að fara í megrun og aðatöffarinn alveg yfir sig ástfanginn af henni en hún lætur hann þjást og vil ekkert með hann hafa. Jebbs þetta er sem sagt alveg bráðfyndin sápa. Enn hefur enginn verið með einhverri sem einu sinni var dóttir hans eða dáið nokkrum sinnum og lifnað við aftur og aftur!! Er einhver þarna sem á þessa þætti á flakkaranum sínum, ef svo er endilega látið mig vita:o) Ég held reyndar að stöðin sem gefur þessa þætti út eða framleiðir þá sé farin á hausin en vonandi er það bara vitleysa! Kveðja til ykkar allra Ólöf Kristín

» 5 hafa sagt sína skoðun

28.01.2008 13:40:50 / asa

Fanney á afmæli

Innilega til hamingju með daginn Fanney:-)

Njóttu dagsins.:lol:

kv Ása Guðrún


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.01.2008 14:52:55 / asa

Gleðilegt nýtt ár

Gleðilegt ár kæru bekkjarsystkyni takk fyrir allt það gamla. Hlakka til að sjá ykkur í sumar Bkv Ása Gunna

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Könnun
Á að stefna á hitting um hvítasunnuhelgina á Sigló?
10 atkvæði

Nei
1 atkvæði

Finna annan tíma
0 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 11
Klukkan